Þá er sýningum á Jesus Christ Superstar lokið. Það voru
blendnar tilfinningar sem fóru um huga leikara í gær á sýningu sem
svo brutust út í gleði, sorg, tárum og öðrum tilfinningum eftir
sýningu. Sýningin í gær var tekin upp og á að setja þetta á
dvd disk svo allir geti séð þessa snilldaruppsetningu

Krakkarnir gerðu þetta vel eins og alltaf áður og stóðu sig með
prýði

10 sýningar, ekki ein léleg


glæsilegur árangur hjá ekki reynslumeiri krökkum

proud of you
all (K)
Það verður brunað suður á gettu betur á morgun

þar sem MA er að
fara að taka Verslinga í rassgatið því hljóðneminn er á leiðinni
norður þetta árið

420 krakkar fara suður til að
styðja strákana okkar

Og við vitum af fullt af liði
sem er nú þegar fyrir sunnan sem ætlar að koma líka og styðja þá

Það skondna við þetta allt saman er að það eru bara 400
sæti fyrir okkur

Þannig að verið er að reyna að redda
öðrum sal þar sem þeir sem ekki komast inn á Fiskislóð(þar sem
keppnin er haldin) geta fylgst með á stórum skjá

Pant ekki vera
þar samt
Svo er páskafrí á næsta leiti

á föstudaginn nánar til tekið

Vá flakkið á mér, fer suður á morgun með rútu, kem aftur á
ak um nóttina, keyri heim á dósina á föstudaginn til að vera á
hestamóti um kvöldið, og keyri svo suður á laugardagsmorgun
sennilega

vá...hehe
Annars fer páskafríið bara í að slappa af, lesa nokkrar námsbækur

(sénsinn að ég eigi eftir að gera það, en það er á planinu

) oooog fara á hestbak eins oft og ég mögulega get

vonandi verður gott veður
Er annars í heimspeki sem er hræðilegasta fag sem fyrirfinnst ásamt
þýsku

Frjáls vilji, samt er allt ákveðið fyrirfram! my
ass!!